|
|
12.12.2006 19:14:27 / astask
Hæ ég heiti Ásta og mig langar bara til að skrifa nokkur
orð.
Í
fyrsta lagi þá langar mig að segja frá því að mér datt í hug að
skrifa jólakort núna fyrir jólin þar sem ég hef ekki lagt í það
vegna þreytu í fingrunum sem hefur orsakast af miklum skriftum.
Ekki það að ég sé kaþólsk heldur hef ég einfaldlega verið í prófum
seinustu jól og hef þar af leiðandi verið búin að skrifa yfir mig
fyrir jólin. Núna hinsvegar hef ég ákveðið að skrifa nokkur
jólakort en svo fór ég að hugsa að kannski þá gleymi ég að skrifa
einhverjum og sá eða sú fer þá kannski að grenja um jólin og hendir
í mig gömlum spariskóm næst þegar hún eða hann sér mig næst. Ég hef
nebblilega uppgötvað að þrátt fyrir að ég sé útskrifuð úr háskóla
og sé einkar skemmtileg og viðkunnanleg þá er ég ekki fullkomin. Ég
veit að þetta getur komið sem áfall fyrir alla þá vini mína sem
hafa álitið það hingað til en ég get fullvissað ykkur um að þetta
nær bara til mynnis míns. Þið sem viljið því halda áfram að finnast
ég fullkomin getið endilega gert það áfram.
Í
öðru lagi þá vil ég segja að fólk sem stundar skíðastökk er
eitthvað klikk þar sem ein léleg lending og engir fætur meira...
þetta er nokkuð heimskt verð ég að segja.
Í
þriðja lagi þá var verið að segja í fréttunum að seinasti
Geirfuglinn hafi dottið í það í dag. Mjög góð hugmynd hjá honum
fyrir jólin. Hann hefur eflaust ekki getað afborið tilhugsunina um
það að það séu að koma jól og að hann sé munaðarlaus.
Náttúrufræðingar eru víst ekki hrifnir af þessu þar sem þeir vilja
endilega hafa fuglinn uppþurran um jólin. Næsta víst er að hann
verði lokaður inni í rakastilltu búri eftir þetta uppátæki sitt.
Áfram Geirfuglinn segi ég nú bara.
Og
í lokinn vil ég segja við þá sem fá ekki jólakort frá mér að þá
eigi þeir að lesa fyrstu línurnar í þessu bloggi og vera þakklátir
fyrir að þekkja mig.
Gleðileg jól
kveðja
Hin lítilláta Ásta
»
04.10.2006 16:16:53 / astask
Ég hélt að ég ætti mjög viðburðarsnautt líf þar sem ég er nú að
bíða eftir svörum úr ýmsum atvinnuviðtölum og umsóknum en svo fór
ég að hugsa um dagsskrá dagsins í dag og hún er einhvern veginn
svona:
07:00 vaknaði og fór í sturtu
07:30 þurrkaði mér, klæddi, málaði, og lakkaði glært yfir rauða
naglalakkið
08:15 keyrði Óskari í skólann
08:30 mætti út á nes að hitta pabba
09:00 keypti gám í Hafnarfirði að andvirði 250 þúsund
09:30 fór í Byko og leitaði af flísum
10:00 náðum í Óskar og fengum okkur miðmorgunverð
10:30 keyrði pabba í slysó
11:00 fór í Háskólafjölritun og fékk tvo menn til að prenta út
B.S ritgerðina mína (erla þessa sem ég fékk .. fyrir) og binda
inn
11:30 fór í Nemendaskrá og lét rakka mig niður til að byggja upp
sjálfstraust
12:00 búin að eiga erfiðan morgun svo ég fór heim að leggja
mig
15:00 vaknaði aftur og las
15:30 tók Óskar í bakaríið Svo er ég að bíða eftir framhaldi
dagsins en það verður líklega svona
16:30 Solla kemur og við förum að máta kjóla
17:00 förum líklega að greiða okkur og Pálína bætist í
hópinn
17:30 örugglega enn að greiða en förum líklega líka að mála
okkur
19:00 mætum í Perluna til að leika James Bond gellur og fáum
borgað fyrir það... hver sagði svo að það borgaði sig ekki að vera
sæt...?
Mun segja nánar frá seinni parti þessa annasama dags á morgun...
enda á ég gríðarspennó líf..
»
21.09.2006 11:38:54 / astask
Nú er fagur dagur og skemmtilegur, sólin skín og fuglarnir
syngja... ástæðan: ég er að fara að skila ritgerðinni minn á morgun
og hún er tiltölulega tilbúin. Það eina sem skyggir á ánægju mína
er að klukkan er bara hálf 12 og ég er enn að bíða eftir að fá
lokakaflanna út á setta frá umsjónarmanninum mínum. Langar að fá þá
núna til að ég geti klárað þetta helvíti og prentað þetta svo út.
Núna sit ég því ein heima og bíð.. á einmitt einkar gott með það að
bíða, enda hef ég ávallt verið talin mjög þolinmóð manneskja með
meiru.... oh klukkuna vantar núna 25 mín í 12 og ekkert bólar
tölvupósti til mín... ég á svo bágt, langar að klára þetta og fara
svo að leika mér... En á morgun verður svo góður dagur, ég hef
nebbla ákveðið að segja bara ,,æi fokk itt” á þessa ritgerð og
skila henni inn um leið og ég hef lagað það seinasta sem ég þarf að
laga... enda ef ég ákveðið að svona B.S. ritgerð skipti nú ekki
miklu máli! Svo á morgun þá er ég líklega að fara í vísindaferð og
svo á djammið með Önnu Rósu og Óskari, hann veit reyndar ekki að
hann sé að fara á djammið hehe, en hann ræður nú litlu um það
hehe.. hef einnig ákveðið að skrifa ekki meira núna þar sem ég er
orðin út pikkuð eftir seinustu vikurnar.. Mun samt líklega pikka
seinna í dag ef ég þarf að bíða lengi í viðbót...
vil samt benda á að:
- mér hefur leiðst meira seinustu 3 vikurnar en í öllum prófum
sem ég hef tekið samanlagt.
- ég drakk ekkert hvítivín þegar ég skrifaði þessa ritgerð og mun
hún væntanlega líða fyrir það.
- mér finnst ég vera mjög skemmtileg í einrúmi, nema stundum
þegar ég losnaði ekki við mig.
- ég er orðin aðdáandi græns og hvíts te af því ég er of löt til
að hita kaffi.
- ég er gróin föst við einn eldhússtólinn.
- er búin að borða 5 tonn af muffins en samt ekki komin með
ógeð
- ég er að fara að skila ritgerðinni minni á morgun á meðan sumir
sem ég þekki eiga þetta allt efitr ha ha ha, óheppnar!
»
01.09.2006 11:59:24 / astask
jæja núna er ég mætt á hið ástkæra og ilhýra land eða þannig sko,
króatía var frábær og slovenía var frábær, mæli með því að fólk
skelli sér þangað, rosa fallegt og allir voða vinalegir við
íslendiga þar sem fæstir hafa heyrt málið áður og finnst við voða
skemmtileg.. annars er það að frétta að ég er á eftir að fara að
hitta leiðbeinandnn minn og ég er shitt stressuð, mun hún dissa mig
og mína ritgerð eða mun hún lofsama mína ritsmíð (efast reyndar um
það seinna en það má alltaf vona he he). þannig ég er bara að sitja
heima og reyna að finna leiðir til að hugsa ekki um það að ég er
atvinnulaus og þarf að skrifa leiðinlega ritgerð og að reyna að
komast hjá því að taka upp úr ferðatöskunum... er eiginlega ýkt
löt... svo í kveld þá ætla ég að hitta erlu og katrínu (þeir sem
lesa þetta í dag eru velkonmir líka) og leika svoldið og bæta upp 3
mánuði sem fóru í ekkileik.. annars hef ég ekki mikið meira að
segja nema að ég voðalega fegin samt að vera komin heim, það tekur
svo á að vera í fríi. vil líka óska óskari til hamingjuóska með að
vera byrjaður í óskanáminu sínu aftur, veit að hann óskar óskar
þess heitast að fá að læra sem mest í lögfræði he he... ó ég er svo
fyndin.
»
09.08.2006 13:57:26 / astask
vildi bara benda á að á þessum tíma eftir viku verð ég líklegast
komin til Króatíu þar sem ég mun dvelja í 2 vikur... gaman að þessu
»
19.07.2006 10:28:12 / astask
Af augnhárum er
allt gott að frétta, þau rétt mjakast upp úr hársekkjunum sínum
en þó virðst sem þetta ætli að enda vel og verða þau mætt á
svæðið í fullum skrúða í endann á september eða þá er áætlaður
komutími á þau..
Lítið annað er að
frétta nema að ég er líklegast að fara í útilegu um helgina og svo
næstu helgi mun ég fara til Borgarfjarðar Eystri að hlusta á hana
Emelíu Torrini gaula nokkur lög.. held að það verði skemmtun hin
mesta..
En ekki vissi ég,
eða mundi hvað það tekur á að sækja um vinnur. Þegar einhver
vinnumaður/kona hringir í mann þá fyllist maður von og svo þorir
maður varla að tala við fólkið þar sem maður er svo hræddur um að
fá ekki vinnuna… djöfull verð ég að segja… er reyndar bara búin að
fá nei hjá einum vinnustað en það táknar samt að ég sé ekki komin
með vinnu neinstaðar sem er sko ekki alveg sniðugt, ætli ég endi
ekki bara á atvinnuleysisbótum.. ha ha það væri svo kjánalegt ha
ha
Eitt sniðugt í
viðbót, hún Annetta er rosalega spennt fyrir einhverju sem heitir
bootcamp og það eru víst sjálfviljugar þrælabúðir sem fólk borgar
fyrir að fá að taka þátt í… við erum mikið að hugsa um að skella
okkur í þetta og láta fólk berja okkur áfram í herþjálfun í 12
vikur, já það munar ekki um minna eftir bjórinn ha ha
»
15.06.2006 13:02:20 / astask
Sit hérna í
vinnunni minni og hugsa um þýsku, ég er nebbla komin með
þýskuæði.. veit ekki af hverju.. og svo var ég að skoða á hi
póstinum að þar er verið að auglýsa eftir fólki til að hýst
skiptistúdenta í 1 mánuð frá 31 júlí til 31 ágúst. Oh svo má
biðja um fólk frá sérstöku landi.. oh ég myndi sko taka einn
þýskumælandi og spreyta mig á þýskunni. Ég gæti jafnvel komið
með þýsk orðtök eins og ,,du bist einen Kügelskriber”
og auðvitað ,,Ich habe eine Kircheslange in meinen Letherhose”
þetta geta reyndar ekki flokkast sem alvöru þýsk orðtök en þau
eru það hjá mér þannig það er það sama segi ég nú bara.. er
alveg viss um að ég myndi vekja mikla lukku með frösum sem
þessum… oh svei hvað mig langar til að geta slegið um mig með
þeim…
Þýska rúlar
Da da da…
»
09.06.2006 11:42:09 / astask
var að enda við að skrifa skemmtilegt blogg, (já ég er
skemmtileg) og helvítið át bloggið mitt, skíta drasl... en ég var
að skrifa um súrar gúrkur. mundi nebbla í gær atvik sem gerðist úti
á mallorca, nánar til tekið þegar ég og katrín gengum inn á
burgerking og pöntuðum hamborgara, þegar þeir komu svo vildum við
fá að vita hvort það væru súrar gúrkur á honum og ef það væru, hvað
þær væru þá margar.. við gátum nú ekki spurt á ensku til að hafa
þetta einfalt. nei við notuðum okkar fagra móðurmál til að spyrja
um gúrkurnar, til viðbótar virtumst við ekki skilja neina ensku og
vissum ekkert um hvað starfsfólkið var að tala, endurtókum bara
,,súrar gúrkur" hærra og hærra í von um að þetta myndi skyljast hjá
okkur... svo þegar við vorum búnar að bulla í svona 10 mín og allt
starfsfólkið úr eldhúsinu var mætt á svæðið þá hlupum við út,
öskrandi úr hlátri.. einstaklega gaman verð ég að segja... við erum
líka með svo einstaklega góðan húmor ..
annars er ég að fara á bekkjarmót alla helgina, förum að leika í
dag og svo er grillað og svo verðum við látin gera fulla af
kolrugluðum hlutum eins og fara í kappróður og í karadrátt.. þetta
verður eflaust mjög gaman, verst bara hvað ég verð þunn á
mánudaginn, mæli ekki með að fólk reyni að stunda viðskipti við mig
þann daginn, það verður eflaust e-ð mjög skrautlegur dagur..
»
07.06.2006 15:25:23 / astask
já nú er ég bara að slæpast í vinnunni, stefni svo á að fara
heim og skrifa nokkra stafi í ritgerðinni minni.. enda er ég með
eindæmum dugleg. ætlaði reyndar að skrifa helling um helgina en ég
þurfti nauðsynlega að fara á ball og svo þurfti ég líka að bera
áburð á trén, setja niður kartöflur, bera meira á trén, berjast í
gegnum þyrnigerðið í garðinum og grafa upp nokkra sólberjarunna og
setja þá svo niður annarsstaðar, moka skít og bera full af rörum
fyrir jarðaberin hennar mömmu, svo ekki sé mynnst á gulræturnar sem
ég hjálpaði til við að setja niður... er sko dugleg verð ég að
segja...
núna er ég bara að bíða eftir að helgin mæti á svæðið þar sem ég
er að fara á bekkjarmót, er búin að pína Óskar til að koma með mér
á makakveldið á laugardaginn, einhvern verð ég nú að hafa til að
knúsa og kissa þegar ég verð orðin kát hehe, jæja ætli það sé ekki
best að halda áfram að slétta peninga í hraðbankann, ekki meiga
þeir nú vera krumpaðir... það er svo ljúfengt að slétta þá...
»
02.06.2006 12:49:35 / astask
núna er ég að slæpast í vinnunni, sól og blíða úti í gær og ég
að leika mér í bankamannaleik.. ansi skemmtilegt verð ég að segja.
mér er reyndar búið að takast að gera nokkrar vitleysur en hvað er
400.000 kall á milli vina segi ég alltaf...
Mig langar lítið til að fjalla um Mallorca þar sem ég sakna þess
staðar og kæruleysið sem fylgdi því að vera þar.. það sem ég get
sagt er bara
augnháraleysi... og af þeim er lítið að frétta, virðast vera
treg til að koma til baka enda gott að vera á mallorca í
sólinni
einsöngur og sóló í laginu ,,stiginn til himna" eindæmum gott
sóló á háunótunum, allir sem þekkja mig vita hve vel ég syng,
sérstaklega eftir að það er búið að kvarta yfir hávaða...
og síðast en ekki síst ,,strípihreygð" gleymdi mér aðeins þegar
ég var að klæða mig úr fötunum til að leggjast á sólbekkinn, en ég
spyr bara afhverju fólk þarf eiginlega að vera í bikíní þó að
kærastar annarra séu með í för?!
já þetta var annsi gaman...
best að halda áfram að þykjast vera gáfuð í peningaleik...
yfir og úr... fötunum
»
15.05.2006 10:25:54 / astask
Til hamingju ásta með það að prófin eru búin.. já þakka þér
kærlega fyrir það elsku ásta mín..
engin meiri lesning, bara sól, sandur og sangría... ekki svo
slæmt verð ég að segja... núna er málið bara að þvo föt, finna
réttu átfittin og henda þeim niður í tösku ásamt því búa til
tossalista til að ekkert gleymist nú... ekki gott mál að þurfa að
vera á brókinni á kveldin lika ef maður gleymir að pakka nægu magni
af pilsum...
ég er að springa ég hlakka svo til.. ég er að fara til mallorca
ekki á morgun heldur hinn.... vei vei vei... 
og við ykkur hin sem verðið heima vil ég bara segja...
ÓHEPPIN!
»
09.05.2006 21:40:08 / astask
oh þetta er búið að vera svo fallegur dagur...
í dag vaknaði ég snemma og fór að læra fyrir próf. þessi hluti
dagsins var reyndar ekki skemmtilegur en það verður að hafa það.
svo þegar ég var búin að læra til 1 þá fékk ég mér að borða og
skellti mér svo í fótsnyrtingu sem ég fékk hjá henni Önnu Guðlaugu
en hún er að læra í snyrtiskólanum. þegar ég var búin það þá fór ég
í sund með Önnu Rósu og lá þar í 1 og hálfan tíma að sleikja
sólina. þegar það var búið var haldið heim og borðað en svo var
tekið við að mála og plokka augnbrúnirnar ásamt því að lita
augnhárin... núna er ég á góðri leið með að verða fallegust í
alheiminum miðað við allar þær snyrtingar sem hafa verið gerðar á
mér undanfarið, þetta jafnast næstum á við extreame makeover þættina verð ég að
segja, nema kannski að ég er ekki búin að fara í neina skurðaðgerð
og er ennþá með mín eigin brjóst ég er svo sniðug... en bara
svona til að mynnast á það þá styttist óðfluga í Mallorca, dýrð sé
guði og mér fyrir að kaupa miða 
»
08.05.2006 21:06:15 / astask
Ég fór í fangelsi í dag... það er kallað þjóðdeild og er dulbúið
sem bókasafn í kjallara húss helvítis... ég fór þarna í sakleysi
mínu til að fá að glugga í bók fyrir ritgerðina mína en jeminn sko
ég fór þarna niður og bað um bókina. Konan fór og náði í hana eftir
að ég sannfærði hana um að bókin væri ekki á öðrum stöðum á
safninu, það tók samt svona 5 mín. Svo kom hún með bókina og spurði
mig hvort ég hefði komið áður, þá var mér farið að líða eins og ég
væri að koma til læknis eða að fara í vax, en já, þegar ég neitaði
því þá komu lýsingarnar á ferlinu, þær voru svona:
Kona: hengdu upp jakkann þinn bak við hurðina
Ég: ha?
Kona: HENGDU UPP JAKKAN!!!
Ég: (dálítið skelfd) já einmitt
Kona: ertu með 50 kall!?
Ég: ha já (mér leið núna eins og ég væri að kaupa rosa ódýrt
dóp)
Kona: þú þarft að setja dótið þitt í skápinn
Ég: (núna leið mér aftur eins og ég væri hjá klobbalækni eða að
fara í vax) ok
Kona: svo læsir þú fötin inni
Ég: (ó guð, ég þarf að vera nakin hér)
Kona: og ferð inn í lessalinn (sem var læstur að utan og ekki
hægt að opna að utan nema með takka í borðinu hjá konunni.
Ég: já auðvitað (núna leið mér hins vegar eins og ég væri að
fara inn í gasklefann og a ð vaxið og klobbalæknirinn væri
barnaleikur miðað við þennan lofttóma klefa)
Svo varð ég auðvitað að fara inn á lesstofuna þó að mig vantaði
einungis að finna 3 blaðsíður í helvítis dýrmætu bókinni. Ég varð
bara stressuð á því að fara þarna inn. Ég var ekki viss um að ég
kæmist þaðan út og svo þurfti ég líka að pissa. En það tók mig
skammarlegar 5 mínútur að finna þetta og svo gat ég farið út í
frelsið, eða réttara sagt að horfa í augun í óvininum og láta hana
ljósrita fyrir mig. Þetta er sko dýrustu blöð sem ég hef haft þar
sem þau kostuðu blóð, svita, tár og 150 kr... alls tók það mig samt
2 og ½ tíma og væflast inni á bókhlöðunni og núna hata ég hana
virkilega. Skil ekkert í fólki sem vill fara þangað inn og læra að
fúsum og frjálsum vilja.. þetta er alveg rosalegt... mér hrís hugur
við þessu húsi... en núna er sjónvarpið mitt að kalla
»
04.05.2006 14:27:03 / astask
Réttur dagsins er fullnusturéttarfar hjá Óskari en hjá mér er
það Voltaren Dolo með smá dassi af Voltaren Emulgel. já þetta er
unaðslegur dagur hjá okkur hjónaleysunum og ég er bara ekki alveg
viss um hvort er verra fullnusturéttarfarið eða hausverkurinn sem
er búinn að herja á mig seinustu 4 daga. Ég þakka mínu sæla fyrir
að vera ekki að fara í próf fyrr en 13 mai næst en þá er ég líka
búin í prófum og á leiðinni til Mallorca... ekki slæmt verð ég að
segja. Annars er ég ekki ánægð með seinaganginn hjá H&M þar sem
það lítur allt út fyrir að ég fái ekki mitt fallega hvíta bíkíní
áður en ég fer út og í hverju á ég þá að vera?? er ekki viss um að
ég verði vinsæl hjá genginu ef ég verð berrössuð því þá tek ég alla
athyglina af þeim svo ekki sé mynst á að brenna á rassinum en það
er ekki vinsælt hjá mér... jæja nú ætla ég, fallega hárið mitt og
hausverkurinn að fara að skrifa ritgerð.. gangi okkur vel
»
01.05.2006 13:28:25 / astask
VÁ það eru bara 17 dagar þangað til 7 ungar píur leggja
loft undir fót og fara til Mallorca... þetta er endalaust
skemmtileg tilhugsun í prófunum en það er mikið sem þarf að gera
áður en hægt er að fara til útlanda. Til dæmis þarf að plokka,
lita, vaxa og raka alla helstu staði sem sjást þegar maður er í
bikíní, þetta er rosalegt sko. Ég er að fara að byrja í þessum
aðgerðum á morgun þegar ég fer í strípur hjá henni Helgu
minni.
Núna er ég annars bara að láta mér leiðast þar sem allir eru í
prófum núna nema ég. Óskar er að fara í sitt fyrst próf á morgun og
er þar af leiðandi sofandi núna (hann lærir á nóttunni). Ég er
reyndar búin í mínu fyrsta prófi, fór í það á laugardaginn í
KR-heimilinu. Það var mjög asnalegt, 200 manns í einum sal og
enginn fann borðið sem hann átti að vera á. Svo var kona sem las í
míkraphon setninguna ,,það er brot á prófreglum að opna prófbókina
áður en próftíminn byrjar” á svona 2 mínútu fresti. Eins og allir
hefðu bara gleymt því á 2 mínútum... en já svo var fólk að hósta
eins og alltaf þegar það eru próf og þá glumdi í salnum, svo þegar
allir voru búnir að hósta nægju sína tók ég upp á því að henda í
gólfið úrinu mínu, prófborðsnúmerinu, skilríkinu mínu og öllu því
nammi sem ég hafði á borðinu. Úr þessu kom sérstaklega skemmtilegur
skellur sem náði að glymja meira en allt hóstið til samans. Þar með
varð ég vinsælasta stelpan í þessu 200 manna prófi sem er þó nokkuð
gott afrek verð ég að segja... hugsanlega mun ég brjóta stólin minn
í næsta prófi til að endurskapa þessa góðu tilfinningu sem fylgdi í
kjölfar þessara vinsælda.. en nú er ég farin í sund..
Verð samt að segja eitt sem er rosa fyndið, ég er semsagt
komin með vinnu í sparisjóðnum heima, sem er mjög gaman og ótrúlegt
þar sem ég kallaði sparisjóðsstjórann röngu nafni í umsókninni
minni... ég er með þá
kenningu að myndin sem fylgdi með hafi verið það góð að þessi
ruglingur hafi engu máli skipt... en það var nú ekki það fyndna
heldur að hann Óskar minn er líka kominn með vinnu og hvar haldiði
annarsstaðar en í Landsbankanum heima... já við
bankastarfsmannahjónin verðum örugglega í sífelldum metingi í heilt
sumar um það hvor bankinn er betri.. aumingja þeir sem ætla að
leika við okkur í sumar, eins og við séum ekki nógu leiðinleg fyrir
ha hah... en nú er ég farin í sund
»
Síður: 1 2 3
|
|