Ég fór í fangelsi í dag... það er kallað þjóðdeild og er dulbúið
sem bókasafn í kjallara húss helvítis... ég fór þarna í sakleysi
mínu til að fá að glugga í bók fyrir ritgerðina mína en jeminn sko
ég fór þarna niður og bað um bókina. Konan fór og náði í hana eftir
að ég sannfærði hana um að bókin væri ekki á öðrum stöðum á
safninu, það tók samt svona 5 mín. Svo kom hún með bókina og spurði
mig hvort ég hefði komið áður, þá var mér farið að líða eins og ég
væri að koma til læknis eða að fara í vax, en já, þegar ég neitaði
því þá komu lýsingarnar á ferlinu, þær voru svona:
Kona: hengdu upp jakkann þinn bak við hurðina
Ég: ha?
Kona: HENGDU UPP JAKKAN!!!
Ég: (dálítið skelfd) já einmitt
Kona: ertu með 50 kall!?
Ég: ha já (mér leið núna eins og ég væri að kaupa rosa ódýrt
dóp)
Kona: þú þarft að setja dótið þitt í skápinn
Ég: (núna leið mér aftur eins og ég væri hjá klobbalækni eða að
fara í vax) ok
Kona: svo læsir þú fötin inni
Ég: (ó guð, ég þarf að vera nakin hér)
Kona: og ferð inn í lessalinn (sem var læstur að utan og ekki
hægt að opna að utan nema með takka í borðinu hjá konunni.
Ég: já auðvitað (núna leið mér hins vegar eins og ég væri að
fara inn í gasklefann og a ð vaxið og klobbalæknirinn væri
barnaleikur miðað við þennan lofttóma klefa)
Svo varð ég auðvitað að fara inn á lesstofuna þó að mig vantaði
einungis að finna 3 blaðsíður í helvítis dýrmætu bókinni. Ég varð
bara stressuð á því að fara þarna inn. Ég var ekki viss um að ég
kæmist þaðan út og svo þurfti ég líka að pissa. En það tók mig
skammarlegar 5 mínútur að finna þetta og svo gat ég farið út í
frelsið, eða réttara sagt að horfa í augun í óvininum og láta hana
ljósrita fyrir mig. Þetta er sko dýrustu blöð sem ég hef haft þar
sem þau kostuðu blóð, svita, tár og 150 kr... alls tók það mig samt
2 og ½ tíma og væflast inni á bókhlöðunni og núna hata ég hana
virkilega. Skil ekkert í fólki sem vill fara þangað inn og læra að
fúsum og frjálsum vilja.. þetta er alveg rosalegt... mér hrís hugur
við þessu húsi... en núna er sjónvarpið mitt að kalla