Vá Vá Vá...mér finnst ég vera svo dugleg þar sem ég er búin með
1. prófið mitt, stóð mig hreint út sagt glimrandi þó ég segi sjálf
frá, vildi bara að kennarinn sjái frammistöðu mína í réttu ljósi,
kannski bara ljósi upp á svona 10... jafnvel þótt líkurnar á því
eru hverfandi þá er ég samt hress og kát því ég er með svefngals.
ég var líka með svefngalsa í gær þangað til ég áttaði mig á því að
ég hefði verið lúði í grunnskóla þar sem ég átti ekki Kraftgalla...
ég átti bara einhvern sem kostaði miljón minna og var dökkur að
innan, ég og Erla, komumst að því að við vorum í sameiginlegu
lúðabandalagi þegar við vorum litlar þar sem hún átti ekki
heldur Kraftgalla.... lúði og ekki lúði, ég var allaveganna
ekki í rokklingunum... en ég átti samt plötuna, massa góð
plata...
oh svo þarf ég að fara að læra fyrir næsta próf sem ég nenni
ekki í. mér finnst að það ætti að leggja niður próf og meta fólk
eftir skemmtilegheitum, er nokkuð viss um að ég fengi nokkuð hátt á
því þar sem ég tel mig sjálfa vera mjög skemmtilega, það er að
segja þegar ég er ekki leiðinleg og legg mig í einelti.. og guðný
getur pissað á sig... hef heyrt að henni langi það