Stúlkan sem vissi of lítið
Skemmtilegt
26.01.2005 13:50:13 / astask

Heilbrigður lífsstíll!!

Já nú munu margir hrökkva í kút... ég hef snúið blaðinu við og hef nú ákveðið að snúa mér að heilsurækt og eflingu hugans. Ég byrjaði þessa viku á því að versla mér kort í einni af líkamsræktarstöðvum borgarinnar og hef nú með deginum í dag farið tvisar. Nokkuð góð mæting myndi ég segja þar sem nú er bara miðvikudagur. Ég hef hins vegar í hyggju að fara á morgun og líka á föstudaginn. Ég er einnig hand viss um að með þessum hætti komist ég í ,,buxur fyrir blótið" eins og ég kýs að kalla þetta átak hjá mér enda er ég að fara á massað þorrablót heima hjá Önnu Rósu á föstudaginn. Það liggur við að ég springi þegar ég hugsa um það mig hlakkar svo til. Þá erum við einnig komin af seinni hluta lífstílsbreytingar minnar neflilega ,,eflingu hugans". Ég hafði neflilega hugsað mér að drekka mikið og lengi á föstudaginn og reyna svo á hugarleikfimina á laugardaginn. Í grófum dráttum felst hún í því að muna eftir kvöldinu. Jafnvel að það verði sett upp keppni og sá sem man mest vinnur einhvern heilsutitil.... Nú hljóta margir að spyrja sig þeirrar spurningar hvernig ég geti verið í aðhaldi og samt dottið í það. Það ernú svo einfalt. Maður drekkur bara sterkara vín því maður þarf minna af því og svo lite bjór... sniðugt ekki satt....


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2005 18:27:25 / astask

Eldvatn

Jah, svei attan. Nú er ég búin að vera viku í skólanum og er strax komin með skólaleiða. ekki gott þar sem aðeins vika er búin og ekkert farið að styttast í páskafrí. Annars er það nú helst að frétta að áfengismagn í blóði hjá mér hefur ekkert minkað frá því á föstudag þegar ég var á nobbarasjói hér í bæ á stað sem er kenndur við breiðan veg. Var ég orðin með einsdæmum drukkin þegar ég staulaðist heim til mín en annars er ekkert að því. Heimtaði reyndar að við myndum skunda niður í bæ til að éta hlölla enda var fíkn mín í hann gífurleg. Óskar fékk mig hinsvegar til að hætta við það þegar hann var búinn að gera mér ljóst (í svona 5 skiptið) að við ættum svona 2 pizzur heima frá því um kvöldið. Ég var nú samt ekkert á því að bakka með Hlöllan en fór samt heim. Var samt búin að gleyma löngun minni í Hlölla þegar ég var sest inn í leigubílinn. Mynnið er ekki betra þessa dagana. Vaknaði daginn eftir sprækur eins og lækur og heimtaði að húshjálpin myndi mæta til að vaska upp og taka til bjórflöskur en ekkert gerðist. Heimilishjálpin hefur nú verið rekin og getur ekki vænst þess að fá meðmælabréf frá mínu heimili. Svona týpur. Ég át því meiri pizzur og fór aftur inn í herbergi í hefndarskyni við skítuga eldhúsið og heimilishjálpina sem ég átti ekki. Já, ha ha ha, ég kenndi þeim sko lexíu.


» 94 hafa sagt sína skoðun