Stúlkan sem vissi of lítið
Skemmtilegt
30.03.2006 10:02:16 / astask

Mallorca

þetta er fagri sundlaugargarðurinn og hótelið mitt sem ég verð á 17 til 24 maí.

langaði bara að deila þessum fagra stað með ykkur :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 10:46:06 / astask

Afmæli

já ég vildi nú bara byrja á því að óska mér til hamingju með afmælið seinasta sunnudag, ég varð 24 ára og færist nú óðfluga nær dauðanum. einnig vil ég óska henni mömmu til hamingju með daginn í gær og svo vil ég enda á því að óska mömmu hennar til hamingju með daginn í dag, hún amma mín er 87 ára og er orðin háöldruð þannig ég veit ekki hvað ég er að væla með að vera orðin gömul.. svo vil ég líka bara motna mig á því að ég er að fara í útskriftarferð til mallorca þann 17 mai þar sem ég hygg á gleðivatnsdrykkju og sólbrunku í viku. held það verði sérlega skemmtilegt og fræðandi fyrir ábúendur mallorca að sjá 7 ungar háskóla stúlkur djamma af sér rassinn (og reyndar 2 karlmenn líka) og það magn drykkja sem munu fara ofan í þetta djammþyrsta lið... vá hvað ég er heppin og ég hlakka til... til hamingju ég að vera ég 8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 22:00:54 / astask

Sumó búinn

Já helgin búin og ég of freðin til að hafa þetta langt, vildi bara segja að ég var að setja inn myndir frá árshátíð fjallsins (er neðst á síðunni til vinstri) og set mun bráðum setja inn myndir úr bústaðnum líka :)

njótið heil ... en ekki hálf ha ha ha ha


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 11:46:07 / astask

Árshátíðin er búin

Jæja þá er árshátíðin búin,

Dagurinn byrjaði á því að við mættum öll spræk kl korter í 11 í rútuna. Svo var ekið sem leið lá til Grindavíkur þar sem við vorum látin leika nokkra hálfvitaleiki og gera okkur að fíflum. Við fórum meðal annars í boðhlaup og var ég og 3 aðrir látnir hlaupa með bundið fyrir augun, þar sem ég er dama ákvað ég að svindla eins og ég ætti lífið að leysa og batt trefilinn því extra illa og sá því hvert ég var að fara, ég held að þetta afrek mitt hafi bætt upp fyrir lélegt gengi hópsins í goggafótbolta. En þar sökkuðum við vægast sagt feitt. En eftir hálvitaleikina fórum við í bláa lónið og þvoðum af okkur skítinn. Eftir það lá leiðin aftur til reykjavíkur og kom rútan í öskju örlítið of seint. Þar sem við stelpurnar ætluðum að taka okkur til hérna heima ákváðum við að troða okkur allar í litla pólóinn hennar ásdísar. Við vorum sex en það var nú lítið mál, við keyrðum bara eins og sardínur í dós heim. Ferðin heim hefði átt að vera viðburðarlaus en þar sem við vorum að flýta okkur ákvað hún ásdís að stytta sér leið í gegnum hlíðarnar á leið í sóltúnið, ekki gott múf hjá henni verð ég að segja, en hún fór á svona 50 fyrir hraðahindrun á leiðinni með þeim afleiðingum að allar sem sátu í aftursætinu hoppuðu upp í loft og ég og erla sem sátum við hurðarnar skullum upp í kantana. Þar með var komið að fyrstu meiðslum kveldsins.

            Þegar við komum heim var drifið í því að mála, greiða og spreyja svo allar yrðu sem glæsilegastar. Það gekk allt eftir óskum með tilliti til þess að margar stúlkur voru að nota sömu speglanna í einu. Þegar klukkan var rúmlega 7 skelltum við okkur í bílana og keyrðum á hótel sögu. Kveldið byrjaði á því að við fórum inn á vitlausa árshátíð og urðum að bakka út með skít og skömmum, okkur tókst samt að komast á árshátíðina okkar í annarri tilraun.. borðhaldið olli örlitlum vonbrigðum þar sem það var engin dinner tónlist, eiginlega engin skemmtiatriði og þetta líktist meira svona almennu fylleríi en árshátíð. Hinsvegar skemmtum við okkur vel en plötusnúðurinn á skilið skít og skammir fyrir lélega tónlist. Árshátíðin leystist því upp í rugl en við enduðum á papaballi í súlnasal á mogga árshátíðinni og skemmum okkur helvíti vel...

 

Nenni ekki að skrifa um þetta meira en skelli kannski inn ítarlegri lýsingu á kveldinu seinna...



 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2006 15:47:58 / astask

Árshátíð...

Já það er komið að því.. árshátíð á morgun!

shit hvað það er spennandi að vera að fara á svona árshátíð.. dagurinn byrjar sko snemma með óvissuferð kl 11. kl 16:30 komum við svo heim og þá verðum við að fara á miljón heim og maka á okkur andlitunu ásamt því að planta tonni af hársperyi í hárið,  mitt motto er ,,aldrei of mikið sprey"

annars er planið að vera ekki jafn skemmtileg og á seinustu árshátíð, það er árshátíðinni hans óskars. en þar fór ég á kostum, með drykkjaseðil kvöldsins framan á mér ásamt því að skella einu sparki í hælaskónum í bakið á einum bekkjarfélaga hans óskars. ástæðan fyrir sparkinu var að honum fannst skemmtilegt að lyfta pilsinu mínu upp, en þar sem ég er ég þá kann ég að borga fyrir mig og gaf honum því eitt gott spark í bakið.. haha ha var sko ánægð með afrekið.. eða þangaði til ég áttaði mig á því að hugsanlega gæti ég nú verið lamin fyrir þetta og forðaði mér því til barða og sævars.. þetta var snildar kveld og ég vænti því mikils af árshátíðinni hjá fjallinu...

vá jæja best að fara og raka lappirnar, plokka, lita og gera allar tilheyrandi ráðstafanir... vei vei vei


» 1 hafa sagt sína skoðun